Eiður Smári líklega seldur í sumar

Eiður Smári spilar líklega ekki með Chelsea á næstu leiktíð.
Eiður Smári spilar líklega ekki með Chelsea á næstu leiktíð. Reuters

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði í viðtali við Sky-sports í dag að Chelsea myndi jafnvel selja Eið Smára Guðjohnsen, fyrirliða íslenska landsliðsins í knattspyrnu, í sumar. Mourinho segir Chelsea áfram hafa not fyrir íslenska fyrirliðann, en Mourinho segir þó að Chelsea muni jafnvel selja Eið Smára ef gott tilboð berst í hann.

„Eiður Smári er frábær knattspyrnumaður og viljum gjarnan halda honum hjá Chelsea, en við seljum hann kannski ef við fáum gott tilboð í hann,“ sagði Jose Mourinho. Sjá einnig enski.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert