Hóf skothríð í kirkju í Baton Rouge

Karlmaður hóf skothríð í kirkju í Baton Rouge í Louisiana í Bandaríkjunum í dag með þeim afleiðingum að fjórir kirkjugestir létu lífið og sá fimmti særðist. Maðurinn hafði eiginkonu sína og þrjú börn á brott með sér úr kirkjunni og myrti konuna í íbúð skammt frá kirkjunni áður en hann var handtekinn. Börnunum var bjargað ómeiddum.

Maðurinn er 25 ára. Lögreglan segir ekki ljóst hvað honum gekk til.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert