Margir hafa ekið útaf í Langadal

Vetrarríki er nú allsráðandi norðanlands og ekki ferðaveður.
Vetrarríki er nú allsráðandi norðanlands og ekki ferðaveður. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Langidalur er illfær og að sögn lögreglunnar á Blönduósi eru margir bílar búnir að aka út af veginum þar í óveðri og hálku. „Björgunarsveitin er komin á staðinn til að aðstoða fólk upp á veginn og það má segja að það sé ekki ferðaveður þar," sagði Birgir Ingólfsson hjá lögreglunni á Blönduósi. Birgir sagði að það væri mikið annríki hjá lögreglunni á staðnum og að færð og veður hefði verði mjög leiðinleg milli Blönduóss og Hvammstanga í morgun og hefði örugglega ekki batnað við aukna snjókomu og vind.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert