Helgi Þórður Jóhannsson var ásamt dóttur sinni að veiðum við Nausthamarsbryggju í Vestmannaeyjum í dag þegar um það bil sex punda lax beit á. Tók hann ærlega í og þurfti Helgi að hafa sig allan við og fékk aðstoð nálægra veiðimanna til að landa honum.