Ökumaður var fluttur á sjúkrahús á Akureyri eftir bílveltu á Ólafsfjarðarvegi skömmu eftir hádegi í dag. Hann er þó ekki talinn alvarlega slasaður. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Dalvík missti ökumaður á norðurleið stjórn á bíl sínum um það bil miðja vegu á milli Akureyrar og Dalvíkur.
Eftir að bifreiðin fór út af veginum valt hún ofan í skurð þar sem hún endaði á hliðinni. Vitni var að slysinu og kallaði það eftir aðstoð. Beita þurfti klippum til að ná manninum út úr bifreiðinni. Hann er grunaður um ölvun við akstur.