„Með ólíkindum hvað útihúsin brunnu hratt"

Útihúsin á Húsatóftum I stóðu í ljósum logum í morgun.
Útihúsin á Húsatóftum I stóðu í ljósum logum í morgun. mynd/Valgerður

Valgerður Auðunsdóttir bóndi á Húsatóftum I segir með ólíkindum hvað útihús á bænum hafi brunnið á skömmum tíma, enda sé nú allt mjög þurrt. Hún vaknaði um klukkan sex í morgun við bresti þar sem þaksperrur fjóssins á bænum brunnu, þakið féll skömmu síðar.

Valgerður náði að bjarga fimm kúm, kvígu sem á að bera í mánuðinum og kálfi. Um þrjátíu gripir brunnu inni, en kvígur eru allar úti og sluppu því. Hreinsunarstarf er hafið og er verið að slökkva í glæðum og komast fyrir reyk.

Valgerður segir tjónið eðlilega mikið þar sem lifibrauð þeirra hafi svo að segja brunnið til kaldra kola. Segir hún starfsmenn tryggingafélagsins koma síðar í dag til að meta tjónið og að þau hjónin eigi í raun ekki húsin lengur. Valgerður vill ekkert segja um það hvort ný útihús verði byggð í kjölfarið.

Samkvæmt upplýsingum frá brunavörnum Árnessýslu verður unnið að því í dag að slökkva í glæðum og hreinsa fram eftir degi auk þess sem gripirnir verða urðaðir í samvinnu við heilbrigðiseftirlitið.

Slökkvilið var kallað út um tuttugu mínútur yfir sex í morgun og voru húsin alelda þegar það kom á staðinn. Þök húsanna féllu og eru húsin ónýt.

Eru að sögn ýmsar getgátur uppi um eldsupptök, en ekkert er hægt að segja með vissu að svo stöddu.

Á vefsíðu lögreglunnar kemur fram að eiginlegu slökkvistarfi hafi lokið um kl. 8, en brunavakt er við húsin og er hafin vinna við rannsókn eldsupptaka. Lögreglan á Selfossi hefur leitað eftir sérfræðiaðstoð frá Tæknideild Lögreglunnar í Reykjavík vegna rannsóknarinnar auk þess sem rannsóknarmenn frá Neytendastofu munu kanna sérstaklega hvort kviknað hafi í út frá rafmagni.

Vettvangurinn er yfirgripsmikill og mun þessi vinna taka nokkurn tíma.

Ljóst er að fjárhagslegt tjón af brunanum nemur tugum milljóna.

Útihúsin eru rústir einar.
Útihúsin eru rústir einar. mbl.is/Sigurður Sigmundsson
mbl.is/Guðmundur Karl
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert