Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra vísar á bug gagnrýni umhverfisráðherra Ástrala, Ians Campbells, á hvalveiðar Íslendinga. Segir Einar að veiðarnar fari fram með ábyrgum hætti og því sé ekkert við þær að athuga. Haft var eftir Campbell í morgun að Íslendingar hafi með veiðunum sýnt alþjóðasamfélaginu hinn argasta dónaskap.