Úrskurðaðir í farbann eftir umferðarslys

Frá slysstað á Reykjanesbraut á laugardagskvöldið.
Frá slysstað á Reykjanesbraut á laugardagskvöldið. mbl.is/RAX

Tveir erlendir ríkisborgarar, sem voru í bíl sem lenti á steyptum klossum við Reykjanesbraut á laugardagskvöld hafa verið úrskurðaðir í farbann. Þriðji maðurinn lét lífið í slysinu, en hinir tveir sluppu með minniháttar meiðsli. Lögreglan í Hafnarfirði segir, að þar sem ekki hafi legið ljóst fyrir hver ók bílnum þegar slysið varð voru mennirnir tveir sem lifðu af handteknir og vistaðir í fangaklefa eftir skoðun á sjúkrahúsi. Þeir voru teknir til skýrslutöku í gær með réttarstöðu sakborninga.

Lögreglan segir, að málið sé enn í rannsókn og lúti að aðdraganda og orsökum slyssins, meðal annars að meintum of hröðum akstri og ölvunarakstri, sem og vegmerkingum á þeim vegarkafla þar sem slysið varð. Þá snúi rannsókn málsins einnig að því að upplýsa hver þremenninganna ók bifreiðinni á þeim tíma sem slysið varð.

Lögreglan fékk tilkynningu um umferðarslys á Reykjanesbraut í Molduhrauni í Garðabæ klukkan 22:30 á laugardagskvöld. Þar hafði bíl verið ekið norður Reykjanesbraut og á steypta klossa á mótum vegarins þar sem umferð er beint af nýjum vegarkafla til norðurs, þar sem nú eru tvær akreinar í sömu átt, og yfir á annan vegarkafla þar sem ein akrein er í hvora átt. Þarna standa nú yfir vegarframkvæmdir til tvöföldunar Reykjanesbrautar.

Þrír menn voru í bílnum, allt pólskir ríkisborgarar, og voru þeir fluttir á slysadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss. Einn þeirra var úrskurðaður látinn við komu þangað en hinir tveir sluppu með minniháttar meiðsl og voru útskrifaðir að skoðun lokinni.

Lögreglan segir að mennirnir tveir, sem lifðu slysið af, hafi verið teknir til skýrslutöku í gær með réttarstöðu sakborninga. Í gærkvöldi voru þeir svo úrskurðaðir í farbann til 30. nóvember næstkomandi af Héraðsdómi Reykjaness að kröfu lögreglustjórans í Hafnarfirði og sleppt úr haldi lögreglu að því loknu.

Lögreglan biður þá, sem kunna að hafa orðið vitni að slysi þessu eða telja sig hafa upplýsingar sem geta komið að gagni við rannsókn málsins, að hafa samband við lögregluna í Hafnarfirði í síma 525 3300.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert