Húsfyllir var þegar tónlistarmaðurinn Sufjan Stevens lék m.a. lög af plötu sinni, The Avalanche, við góðar undirtektir í Fríkirkjunni í kvöld. Tónleikunum var flýtt vegna tónleika Sykurmolanna sem nú standa yfir í Laugardalshöll, en síðari tónleikar Stevens verða haldnir á morgun.