Skotárásir í Lundúnum og Manchester

Lögregla rannsakar vettvang þar sem unglingurinn Billy Cox var myrtur …
Lögregla rannsakar vettvang þar sem unglingurinn Billy Cox var myrtur fyrir fáeinum fögum. AP

Maður á þrítugsaldri fannst látinn í bíl sínum í Hackney í austurhluta Lundúna í morgun, og leitar lögregla tveggja manna sem sáust á vettvangi. Þá munu tveir hafa særst í skotárás í Manchester. Aðeins eru fáeinir dagar síðan þrír unglingar voru skotnir til bana í suðurhluta Lundúna.

Mikil viðbúnaður hefur verið vegna skotárásanna og leitar sérteymi lögreglu morðingjanna, þrír munu hafa verið handteknir í suðurhluta Lundúna í eftirliti, en eru ekki taldir tengjast málinu.

John Reid, innanríkisráðherra Breta, hefur brugðist við og segist nú íhuga hvort þyngja eigi refsingar vegna glæpa sem tengjast byssum og glæpagengjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert