Hljómsveitirnar Soðin Skinka, frá Hvanneyri, og <3 Svanhvít! frá Reykjavík komust áfram á þriðja tilraunakvöldi Músíktilrauna 2007 sem haldið var í gærkvöldi. Fékk fyrrnefnda sveitin flest atkvæði frá áhorfendum en sú síðarnefnda hlaut fulltingi dómnefndar. Úrslitakvöld Músíktilrauna fer fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, annan laugardag.