Háskólanemi skaut herbergisfélaga sinn og framdi sjálfsvíg

Háskólanemi í New Hampshire í Bandaríkjunum skaut herbergisfélaga sinn og særði og framdi síðan sjálfsvíg í dag. Atvikið átti sér stað í íbúð mannanna en lögreglu barst símtal frá þeim særða sem hringdi eftir að hafa flúið heimili sitt og sagðist hafa verið skotinn. Þegar lögregla kom á vettvang og reyndi að komast inn í íbúð mannanna hleypti sá látni af einu skoti og var látinn þegar lögregla komst inn.

Málsatvik eru ekki ljós en vitað er að þriðji leigjandinn var viðstaddur bæði þegar sá látni skaut vin sinn og þegar hann framdi sjálfsvígið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert