Í miðborg Reykjavíkur hefur hver brotið sér leið upp úr malbikinu á bílastæði einu, og Skoda-bifreið er heldur illa leikin eftir að tré spratt upp, að því er virðist, í gegn um hana miðja. Starfsmenn Reykjavíkurborgar segjast engar skýringar hafa á þessum náttúruundrum, sem virðast þó tengjast bauki meintra franskra fornleifafræðinga, sem hér eru á ferðinni í tengslum við listahátíð í Reykjavík.
Upplýsingar um Royal de Luxe og dagskrá