Tólf líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast um helgina.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast um helgina. mbl.is/Kristinn

Tólf líkamsárásir voru tilkynntir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina og þurftu nokkrir að leita sér aðhlynningar á slysadeild, segir í tilkynningu frá lögreglu.

Tvítugur piltur handleggsbrotnaði eftir átök á Laugavegi og í Bankastræti var bitið í eyra konu á þrítugsaldri. Starfsmaður veitingahúss var sleginn í andlitið þegar hann hugðist stöðva viðskiptavini sem ætluðu að stinga af frá ógreiddum reikningi og starfsmaður verslunar fékk svipaða útreið þegar hann ætlaði að koma í veg fyrir gripdeild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert