Hlíðaskóli fór með sigur af hólmi í Skrekk, hæfileikakeppni ÍTR og grunnskóla Reykjavíkurborgar, en úrslitakeppnin fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld. Seljaskóli varð í 2. sæti og fékk einnig áhorfendaverðlaun Skjás eins, sem sýndi beint frá keppninni í kvöld. Hagaskóli varð í þriðja sæti.
29 skólar hófu keppnina en átta skólar kepptu til úrslita í kvöld. Mikil stemmning var í salnum og hvöttu áhorfendur sitt fólk dyggilega milli þess sem Skrekksbylgjan var tekin.