Þök fjúka og veður er slæmt

Þakplötur eru farnar að fjúka og hafa björgunarsveitamenn verið kallaðir …
Þakplötur eru farnar að fjúka og hafa björgunarsveitamenn verið kallaðir út. mbl.is

 Búið er að opna Hellisheiði fyrir umferð, en ekki er gott ferðaveður þar, hálka og slæmt skyggni. Á höfuðborgarsvæðinu hafa þakplötur og lausir munir af byggingarsvæðum valdið skemmdum á bílum í Kópavogi en verst er ástandið í Hafnarfirði þar sem þök eru að fjúka í heilu lagi. Þar hafa bílar skemmst þegar brak hefur fokið á þá.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar fólk við því að vera á ferð í Valla-hverfinu í Hafnarfirði þar sem brak er að fjúka þar í veðurofsa.

Einnig er varar lögreglan fólk við því að ferðast um Reykjanesbraut þar sem drasl fýkur um veginn og veður er afarslæmt í verstu hviðunum. 

Lögreglan á Suðurnesjum segir mikið annríki vera vegna veðurofsans, þakplötur, grindverk og lauslegir munir fjúka og beðið hefur verið um aðstoð hjálparsveita.  Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út um kl 21 í kvöld vegna foks í bænum. Einnig var athugað með ástand í höfninni.

Um 150 sjálfboðaliðar aðstoða nú lögreglu á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og víðar við að binda niður lausa hluti og hefta för braks. Í Hafnarfirði hafa björgunarsveitum borist um 25 beiðnir um aðstoð.

Mest er þörfin í grennd við nýbyggingar en einnig hafa þakplötur losnað, bílar fokið, gluggar brotnað og vinnupallar og fánastangir farið af stað. 

Veðurstofan varar við stormi sunnan- og vestanlands fram á nótt og
talsverðri rigningu í nótt og til morguns á sunnanverðu landinu.

Varað er við stórhríð á Hellisheiði og Fróðárheiði, - og við óveðri á
Reykjanesbraut, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli en einnig á norðanverðu
Snæfellsnesi vestan Grundarfjarðar.

Það er krap á vegi bæði á Hellisheiði og í Þrengslum en hálkublettir
víða á Suðurlandi.

Það er vetrarfærð í öllum landshlutum, hálkublettir, hálka eða snjóþekja en
yfirleitt ekki fyrirstaða á helstu leiðum.
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert