Vinsælustu framhaldsskólarnir þurfa að vísa 400 nemendum frá

Verzlunarskóli Íslands
Verzlunarskóli Íslands mbl.is/Arnaldur

Um­sókn­ar­frest­ur um nám í dag­skóla á haustönn 2007 rann út í gær, mánu­dag­inn 11. júní. Um 4.200 af 4.500 nem­end­um 10. bekkj­ar grunn­skóla höfðu þá sótt um skóla­vist á haustönn 2007. Flest­ar um­sókn­ir bár­ust Verzl­un­ar­skóla Íslands, Mennta­skól­an­um við Hamra­hlíð, Mennta­skól­an­um í Reykja­vík og Kvenna­skól­an­um. Þess­ir skól­ar þurfa að vísa frá rúm­lega 400 nem­end­um sem höfðu valið þá sem fyrsta kost.

Þeir eiga þó vísa vist í öðrum skól­um þar sem pláss er nægi­legt í fram­halds­skól­un­um. Þá sóttu um 3.000 eldri nem­end­ur, sem annað hvort óska eft­ir að skipta um skóla eða hefja nám að nýju, um skóla­vist í dag­skóla. Hvort tveggja er í takt við áætlan­ir ráðuneyt­is­ins, að því er seg­ir í til­kynn­ingu frá Mennta­málaráðuneyt­inu.

„Frá og með 15. júní kl. 18:00 geta um­sækj­end­ur opnað um­sókn­ir sín­ar aft­ur og fylgst með af­greiðslu þeirra. Þá ætti af­greiðslu um­sókna um aðal­skóla og vara­skóla eitt að vera því sem næst lokið. Af­greiðslu allra um­sókna á að vera lokið fyr­ir miðnætti þriðju­dag­inn 19. júní.

Fái um­sækj­andi úr 10. bekk ekki inni í þeim skóla sem hann valdi berst um­sókn hans til ráðuneyt­is­ins sem þá leit­ar úrræða í sam­ráði við viðkom­andi. Landið er eitt inn­rit­un­ar­svæði en að öðru jöfnu er litið svo á að fram­halds­skól­ar hafi skyld­ur við nem­end­ur sem eiga lög­heim­ili í ná­grenni þeirra. Skól­ar senda svar­bréf til um­sækj­enda sem fengið hafa skóla­vist, en nem­end­ur þurfa að staðfesta veitta skóla­vist með greiðslu inn­rit­un­ar­gjalds," sam­kvæmt til­kynn­ingu.

Frá peysufatadeginum hjá Versló
Frá peysu­fata­deg­in­um hjá Versló mbl.is/​Guðmund­ur Rún­ar Guðmunds­son
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka