Fullar fangageymslur á Akureyri í nótt

Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri.
Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri. mbl/Kristinn Ingvarsson

Talverður erill var hjá lögreglunni á Akureyri í gær og í nótt. Mikill fjöldi er á tjaldsvæðinu að Hömrum og var mjög mikil ölvun á tjaldsvæðinu í nótt og í morgun. Mikill mannfjöldi safnaðist saman í miðbæ Akureyrar og sinnti lögregla mörgum útköllum vegna óláta og slagsmála um allan bæ.

Þó nokkrar kvartanir bárust lögreglu vegna svokallaðrar "burn-out" keppni sem að fór fram á Akureyrarvelli í gærkvöld. Kvartanirnar voru flestar vegna reyks og slæmrar lyktar sem að fylgdi þessari keppni.

Þá voru fjölmargir teknir fyrir of hraðan akstur í Öxnadal í gær. Lögregla er með öflugt eftirlit í og við bæinn og er lögregla með merktar og ómerktar lögreglubifreiðar við það eftirlit.

Sjö líkamsárásir og fullar fangageymslur

Tilkynnt var um að ráðist hafi verið á mann á tjaldsvæðinu að Hömrum um hálf fjögur leytið í nótt. Þegar lögregla kom á staðinn og hugðist ræða við árásaraðilann þá kom annar og veittist að lögreglumönnunum og hindraði þá við störf sín. Sá var handtekinn og árásaraðilinn sem að lögreglumennirnir hugðust hafa afskipti af í upphafi var einnig handtekinn stuttu síðar. Þeir gista nú fangageymslur.

Tilkynnt var um nokkra aðila í slagsmálum við innganginn að tjaldsvæðinu á Hömrum um fimm leytið í morgun. Einn mannanna skallaði annan í andlitið og lamdi síðan gæslumann á tjaldsvæðinu tvívegis í andlitið. Maðurinn var handtekinn og gistir nú fangageymslur.

Hópslagsmál brutust út á tjaldsvæðinu að Hömrum um sex leytið í morgun. Tveir voru handteknir og vistaðir í fangageymslum. Þá sinnti lögregla nokkrum tilkynningum um samkvæmishávaða í heimahúsum í nótt.

Alls var tilkynnt um 7 líkamsárásir á Akureyri í nótt. Auk þess þurfti lögregla að stöðva fjöldan allan af slagsmálum milli manna þó aðallega á tjaldsvæðinu að Hömrum.

Allar fangageymslur lögreglunnar á Akureyri voru fullar og þurfti lögregla að grípa til þess ráðs að vista nokkra á biðstofum lögreglustöðvarinnar þegar mest var.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert