Lögreglumenn stóðu ræningja að verki

mbl.is/Júlíus

Grímuklæddur maður réðst að rannsóknarmönnum um hádegisbil í gær, er þeir voru  í verslun í austurborginni með það fyrir augum að handtaka starfsmann vegna gruns um að hann hefði verið viðriðinn nýleg rán í annarri verslun í borginni.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að lögreglumennirnir hafi ekki verið lengi inni í versluninni þegar grímuklæddur maður kom inn. Andlit hans var algjörlega hulið og er lögreglumenn höfðu afskipti af honum reyndist hann vera vopnaður eldhúshnífi.

Lögreglumennirnir handtóku manninn sem reyndist vera vinur starfsmanns verslunarinnar og var starfsmaðurinn því einnig handtekinn.

Við yfirheyrslur kom í ljós að mennirnir, sem báðir eru á tvítugsaldri, höfðu undirbúið og skipulagt sviðsetningu á ráni í versluninni í þeim tilgangi að ná peningum, símainneignum og tóbaki en starfsmaðurinn hafði einungis unnið í versluninni í fjóra daga.

Við yfirheyrslu játaði hinn maðurinn að hafa ætlað að ræna verslunina og að starfsmaðurinn hafi undirbúið verknaðinn og látið sig vita þegar láta átti til skarar skríða. Skömmu síðar komu hins vegar lögreglumennirnir á vettvang.

Við húsleit heima hjá starfsmanni verslunarinnar fannst þýfi, sem tengist innbrotum, m.a. í Borgarfirði. Um var að ræða fartölvur og skjávarpa.

Þá vakti það athygli lögreglu að ræninginn var klæddur í tvær peysur og tvennar buxur. Þótt kalt hafi verið úti var það ekki skýringin á klæðnaðinum heldur ætlaði hann að komast fljótt úr fötunum og henda af sér á leið af ránsvettvangi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka