MH og Kvennaskólinn senda frá sér yfirlýsingu

Húsnæði Ríkisútvarpsins í Efstaleiti
Húsnæði Ríkisútvarpsins í Efstaleiti mbl.is/Árni Sæberg

Menntaskólinn við Hamrahlíð og Kvennaskólinn hafa sent frá sér sameiginlega tilkynningu þar sem ítrekað er að athugasemdum liðsins vegna viðureignar skólanna í spurningaþættinum Gettu betur hafi verið svarað af Ríkissjónvarpinu. Ástæða yfirlýsingarinnar er sögð umræða í kjölfar þáttarins, sem sögð er hafa þróast í leiðinlega átt.


Yfirlýsingin er svohljóðandi:

Mikil umræða hefur skapast vegna viðureignar skólanna í Gettu Betur síðastliðinn föstudag. Hefur umræðan þróast í fremur leiðinlega átt, og hafa ýmsar skoðanir verið settar fram sem særa stolt liðanna. Að okkar mati var árangur beggja liða framúrskarandi og stóðu liðsmenn sig eins og hetjur. Við viljum því árétta það að þær athugasemdir sem settar voru fram af hálfu beggja liða hefur verið svarað af Ríkissjónvarpinu og er því málinu lokið að okkar hálfu. Við vonumst til þess að dómari og aðstandendur keppninnar taki þetta mál alvarlega og  að slíkar villur eigi sér ekki stað aftur.

Bæði lið Kvennaskólans og Menntaskólans í Hamrahlíð lögðu fram kæru eftir viðureign liðanna sl. föstudag í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna sem sýnd var í Sjónvarpinu. Fram kemur á vefnum gettubetur.is, að dómari keppninnar hafi viðurkennt, að sér hafi orðið á mistök þegar hann dæmdi svar Kvennaskólans við einni spurningunni rangt.

Um var að ræða spurningu um eitt af kraftaverkum Jesú þegar hann mettaði 5000 manns með brauðum og fiski. Kvennaskólinn svaraði að brauðin hefðu verið fimm og fiskarnir tveir en fékk rangt fyrir það.

Kæran var tekin fyrir í gær og segir vefurinn að Páll Ásgeir Ásgeirsson, dómari, hafi viðurkennt að svar Kvennaskólans hefði verið rétt og beðist afsökunar á mistökunum. Menntaskólinn við Hamrahlíð sigraði í viðureigninni eftir bráðabana en ekki eru fordæmi fyrir því að breyta úrslitum eða endurtaka keppnir og standa því úrslitin. Haft er eftir Lilju Dögg Jónsdóttur, formanni Keðjunnar, nemendafélags Kvennaskólans, að skólinn muni una þessari niðurstöðu. Framkvæmdastjórn Sambands íslenskra framhaldsskólanema taka málið fyrir á fundi á fimmtudag.

Kæra MH snerist um það að liðið hafði fengið rangt fyrir að svara „skilja" þegar spurt var um skilvindu. MH-ingar töldu að skilja væri sama fyrirbærið og rökstuddu það með tilvísan í samheitaorðabók. Útvarpið féllst ekki á rök MH og vísaði kærunni frá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka