Úrskurður um Vestfjarðaveg ógiltur

Séð ofan í Þorskafjörð.
Séð ofan í Þorskafjörð. mynd/bb.is

Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur hef­ur fellt úr gildi úr­sk­urð um­hverf­is­ráðherra frá því í janú­ar 2007 þar sem fall­ist var á svo­nefnda leið B í öðrum áfanga Vest­fjarðaveg­ar frá Bjarkar­lundi til Eyr­ar í Reyk­hóla­hreppi. Nokkr­ir land­eig­end­ur á svæðinu, Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands og Fugla­vernd­ar­fé­lag Íslands höfðuðu málið og kröfðust ógild­ing­ar. 

Skipu­lags­stofn­un lagðist árið 2006 gegn því, að Vest­fjarðaveg­ur yrði lagður sam­kvæmt til­lögu B á leiðinni frá Bjarka­lundi til Eyr­ar. Nýja veg­in­um er ætlað að bæta sam­göng­ur ann­ars veg­ar inn­ar Reyk­hóla­hrepps og hins veg­ar frá Hring­vegi til og frá V-Barðastranda­sýslu og norðan­verða Vest­f­irði.

Jón­ína Bjart­marz, þáver­andi um­hverf­is­ráðherra, felldi hins veg­ar úr­sk­urð Skipu­lags­stofn­un­ar úr gildi og féllst á til­lögu Vega­gerðar­inn­ar um að fara með veg­inn um Teigs­skóg. Land­eig­end­ur og nátt­úru­vernd­ar­fé­lög töldu að slík vega­gerð myndi hafa í för með gríðarleg óaft­ur­kræf um­hverf­is­spjöll í nær ósnortnu um­hverfi og höfðuðu því mál til að fá úr­sk­urð ráðherra ógild­an.

Héraðsdóm­ur tók und­ir þá máls­ástæðu, að brotið hafi verið gegn rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­laga þar sem að í mats­ferl­inu hafi ekki farið fram mat á lík­leg­um um­hverf­isáhrif­um þver­un­ar Djúpa­fjarðar og Gufu­fjarðar. Óvissa ríki því um lík­leg áhrif þver­un­ar Djúpa­fjarðar og Gufu­fjarðar á gróður á töng­um og í botni fjarðanna.

Seg­ir dóm­ur­inn að  þar sem full­nægj­andi upp­lýs­ing­ar um áhrif þver­un­ar fjarðanna á um­hverfið hafi ekki legið fyr­ir þegar ráðherra kvað upp úr­sk­urð sinn, hafi hon­um borið að láta rann­saka þau áhrif á full­nægj­andi hátt. Þannig hefði verið lagður viðhlít­andi grund­völl­ur að ákvörðun­inni áður en hún var tek­in. Þar sem á skorti að fyrr­nefnd­ar upp­lýs­ing­ar lægju fyr­ir við upp­kvaðningu úr­sk­urðar ráðherra sé um svo veiga­mik­inn ágalla á hon­um að ræða, að óhjá­kvæmi­legt sé að fella þann hluta úr­sk­urðar­ins úr gildi.

Leið B, sem var val­kost­ur Vega­gerðar­inn­ar, er rúm­ir 15 km á lengd og ligg­ur frá Þóris­stöðum í Þorskaf­irði, út Þorska­fjörð vest­an­verðan, um Hall­steins­nes, þvert yfir ut­an­verðan Djúpa­fjörð vest­ur á Grónes (Gróu­nes) og þaðan þvert yfir ut­an­verðan Gufu­fjörð. Vest­an Gufu­fjarðar liggi veg­ur­inn frá Mela­nesi og vest­ur fyr­ir Kra­ká.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert