Harður árekstur á Eyjafjarðarbraut

Mikill viðbúnaður var á vettvangi eins og sjá má á …
Mikill viðbúnaður var á vettvangi eins og sjá má á þessari mynd. mbl.is/Benjamín Baldursson

Harður árekstur varð á Eyjafjarðarbraut eystri sunnan við bæinn Uppsali skömmu fyrir klukkan ellefu í morgun.

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Akureyri skullu saman jepplingur og fólksbíll sem komu úr gagnstæðum áttum og þurfti að losa ökumann annarar bifreiðarinnar úr henni með klippum. 

Ökumennirnir voru einir í bílunum og voru báðir fluttir töluvert slasaðir á sjúkrahús. Bílarnir eru báðir ónýtir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert