Sjúkleg stundvísi

Stundvísi er dyggð en öllu má ofgera.
Stundvísi er dyggð en öllu má ofgera. mbl.is/Brynjar Gauti

Nótt­in var ró­leg hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu. Um miðnættið kom þó ábend­ing um eldri konu sem sat ein í bíl fyr­ir utan Kringl­una. Kon­an á pantaðan tíma hjá lækni klukk­an 8.30 í morg­un og vildi ekki koma of seint.

Kon­an sem er á níræðis aldri sagðist ekki vera mjög kunn­ug á þess­um slóðum og vildi hafa vaðið fyr­ir neðan sig.

„Við aðstoðuðum hana við að kom­ast í húsa­skjól gegn því lof­orði að aka henni til lækn­is­ins," sagði varðstjóri lög­regl­unn­ar í sam­tali við mbl.is.

Kon­an mun hafa verið á níræðis aldri og verður séð til þess að hún kom ekki of seint til lækn­is­ins nú í morg­uns­árið.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert