Samson synjað um frekari greiðslustöðvun

Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur hafnaði í morg­un beiðni Sam­son, eign­ar­halds­fé­lags, sem er í eigu feðganna Björgólfs Guðmunds­son­ar og Björgólfs Thors Björgólfs­son­ar, um fram­leng­ingu greiðslu­stöðvun­ar. Sam­son fékk greiðslu­stöðvun 7. októ­ber og rann hún út 28. októ­ber. Þegar óskað var eft­ir fram­leng­ingu gerði lögmaður Comm­erzbank In­ternati­onal S.A. at­huga­semd­ir og krafðist þess að beiðninni yrði hafnað.

Lögmaður Sam­son taldi nauðsyn­legt að fá fram­leng­ingu á greiðslu­stöðvun fé­lags­ins vegna þess að mik­il óvissa ríki um raun­veru­lega stöðu Sam­son og að máli skipti að niðurstaða fá­ist um hvort verðmæti fel­ist í bréf­um Sam­son í Lands­banka Íslands hf.

Lögmaður Comm­erzbank vísaði m.a. til viðtals við Björgólf Guðmunds­son, aðal­eig­anda Sam­son í Morg­un­blaðinu þann 26. októ­ber 2008, þar sem fram komi það mat Björgólfs að bréf Sam­son í Lands­banka Íslands hf., sem áður voru 130-140 millj­arða virði, séu nú einskis virði. Jafn­vel þó að litið verði svo á að virði bréfa Sam­son í Lands­banka Íslands hf. hafi ekki minnkað um nema 70-80% frá því verði sem notað sé til við­miðunar, sé Sam­son engu að síður ómögu­legt að standa í skil­um við lána­drottna sína. Sam­son sé því sýni­lega orðið skylt að krefjast gjaldþrota­skipta.

Í úr­sk­urði Héraðsdóms Reykja­vík­ur seg­ir m.a að ekki þyki sýnt að ráðagerðir Sam­son séu til þess falln­ar að ráða bót á færni hans til greiðslu. Fram hafi komið að und­ir­bún­ing­ur standi yfir til þess að inn­heimta kröf­ur og selja óveð­sett­ar eign­ir. Upp­lýs­ing­ar um þess­ar ráðagerðir séu hins veg­ar svo óljós­ar, að mati dóms­ins, að ekki þykir unnt að leggja mat á það hvort þær séu raun­hæf­ar eða lík­leg­ar til að koma nýrri skip­an á fjár­mál Sam­son. Því séu ekki skil­yrði fyr­ir veit­ingu greiðslu­stöðvun­ar fyr­ir hendi.

Loks seg­ir að þegar fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ing­ar um efna­hag Sam­son eru virt­ar, en stærsta eign fé­lags­ins er 41,85% hlut­ur í Lands­banka Íslands hf., þyki ekk­ert til­efni vera til að telja greiðslu­örðug­leika Sam­son aðeins tíma­bundna. Verði því að fall­ast á það með Comm­erzbank að Sam­son sé skylt að gefa bú sitt upp til gjaldþrota­skipta.

Úrsk­urður Héraðsdóms Reykja­vík­ur

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert