Skoða meintar milljarðafærslur

Skilanefnd Kaupþings segir rannsókn á meintum millifærslum milljarða króna úr sjóðum Kaupþings banka hf. yfir til erlendra banka fyrir þjóðnýtingu bankans í fullum gangi. Skilanefnd hefur ráðið óháðan sérfræðing til verksins og hefur hann haft óheftan og milliliðalausan aðgang að öllum gögnum bankans í tengslum við athugunina. Nefndin segir ekkert liggja fyrir um að fjármunum hafi verið með ólögmætum hætti ráðstafað úr sjóðum bankans eða að peningar hafi verið færðir til landa þar sem erfitt er að komast að því hver reikningseigandinn er.

Skilanefnd Kaupþings banka hf. sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna frétta í fjölmiðlum í gær um að milljarðar hafi verið millifærðir úr sjóðum Kaupþings banka hf. fyrir þjóðnýtingu.

„Á grundvelli  laga nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., beindi Fjármálaeftirlitið þeim tilmælum til skilanefndar Kaupþing banka hf. að skilanefndin réði óháðan sérfræðing til að kanna hvort vikið hafi verið frá innri reglum bankans, lögum og reglum um starfsemi fjármálafyrirtækja, lögum um verðbréfaviðskipti, almennum hegningarlögum svo og öðrum réttarheimildum sem varðað geti háttsemi einstaklinga og lögaðila sem athugunin beinist að. 

Í samræmi við tilmæli Fjármálaeftirlitsins réði skilanefnd þá þegar óháðan sérfræðing til verksins og hefur hann haft óheftan og milliliðalausan aðgang að öllum gögnum bankans í tengslum við athugunina. 

Er vinna þessi í fullum gangi en um gríðarlegt magn ganga, upplýsinga og færslna er að ræða á því tímabili sem er til skoðunar. Á þessu stigi málsins er ekki unnt að greina frá niðurstöðu framangreindrar athugunar, enda er henni ekki lokið eins og áður segir.

Í tilefni af nefndum fréttaflutningi vill skilanefnd þó taka fram að ekkert liggur fyrir um að fjármunum hafi verið með ólögmætum hætti ráðstafað úr sjóðum bankans eða að peningar hafi verið færðir til landa þar sem erfitt er að komast að því hver reikningseigandinn er, eins og gefið var til kynna í fréttum ofangreindra fjölmiðla.

Skilanefndin hyggst sjá til þess að athugun hins óháða sérfræðings verði lokið innan eðlilegs tíma eins og ráð var fyrir gert og í framhaldi af því kynna niðurstöður þeirrar athugunar fyrir Fjármálaeftirlitinu.
Fyrir hönd skilanefndar Kaupþings banka hf.,
Steinar Þór Guðgeirsson, formaður.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka