Forsætisráðuneyti ræður sænskan sséfræðing

Forsætisráðuneytið hefur ráðið til tímabundinna starfa Mats Josefsson, sænskan bankasérfræðing. Mats tekur við þeirri stöðu sem Ásmundur Stefánsson hefur gegnt við uppbyggingu bankakerfisins.

Starfið er skilgreint í 5. grein samkomulagsins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn  þar sem segir: „Ákveðið skipulag er komið á við skil yfirteknu bankanna og leiðir til að hámarka heimtur eigna með gagnsæjum hætti. Stefna okkar að þessu leyti hefur verið útfærð nánar að undanförnu. Virtur bankasérfræðingur var skipaður til að stýra endurskipulagningu bankanna. Sérfræðingurinn starfar á vegum forsætisráðherra og ber ábyrgð á að þróa, innleiða og skýra frá heildstæðri aðgerðaáætlun um endurskipulagningu bankanna. Til að samræma stefnu og aðgerðir stjórnvalda hefur verið skipuð nefnd sem bankasérfræðingurinn stýrir og í eiga sæti fulltrúar frá forsætisráðuneyti, Fjármálaeftirliti, Seðlabanka, fjármálaráðuneyti, utanríkisráðuneyti og viðskiptaráðuneyti.”

Ásmundur Stefánsson hefur fram að þessu sinnt þessu starfi en þegar hann var skipaður formaður bankastjórnar Landsbankans var ákveðið að hann myndi ekki gegna því áfram.

Mats Josefsson starfaði í 13 ár hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum en var áður aðstoðarforstjóri sænska fjármálaeftirlitsins og þar á undan forstöðumaður í sænska seðlabankanum. Hann stýrði eftirliti með bankastarfsemi í Svíþjóð á árunum 1990–1994 á tímum bankakreppunnar. Segir forsætisráðuneytið að vonast sé til að reynsla Josefsson af því verki nýtist Íslendingum við þær aðstæður sem nú eru uppi.

Josefsson lék sömuleiðis stórt hlutverk í milligöngu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í uppbyggingu bæði í Tyrklandi og Taílandi eftir bankakreppu sem þau lönd glímdu við frá því um og eftir aldamótin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert