Nokkrir tugir manna ruddust inn í skrifstofur Landsbankans í Landssímahúsinu í miðborg Reykjavíkur og síðan inn í aðalútibú Landsbankans við Austurstræti. Hrópar fólkið slagorð, svo sem: Spillinguna burt. Lögreglan hefur ekki látið að sér kveða en starfsfólk Landsbankans reyndi án árangurs að koma fólkinu út.