Fór á stolnum bíl til Akraness

Bíllinn sást hverfa ofan í Hvalfjarðargöngin.
Bíllinn sást hverfa ofan í Hvalfjarðargöngin. RAX

Bíll, sem tilkynnt var að hefði verið stolið úr Hafnarfirði, fannst á Akranesi í nótt. Ökumaðurinn var handtekinn og fluttur til Reykjavíkur.

Tilkynnt var um þjófnaðinn á bílnum á vef 4x4 í gærdag, að sögn lögreglu, og sá sem hafði samband við lögreglu hafði séð þá tilkynningu. Um var að ræða glöggan vegfaranda því á ferðalagi sínu  sá hann bílinn hverfa ofan í Hvalfjarðargöngin og tilkynnti lögreglu að bíllinn væri á þeim slóðum.

Lögregla á Akranesi hafði svo uppi á bílnum og ökumanni hans í nótt. Ökumaðurinn var grunaður um akstur undir áhrifum ávanafíkniefna. Hann var fluttur til Reykjavíkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert