Telja áform um sameiningu heilbrigðisstofnana flaustursleg

Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi mótmælir harðlega öllum hugmyndum um stórfellda sameiningu heilbrigðisstofnana, sem kynntar voru á fundi 7. janúar.

Í fréttatilkynningu frá starfsmannafélagi Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi segir að engin haldbær gögn hafi verið lögð fram sem sýna að um raunsparnað sé að ræða og engin fagleg rök hafi komið fram fyrir sameiningunni. „Þjónusta við íbúana mun skerðast verulega og mannslífum er stefnt í hættu. Ætlun ráðherra er að keyra einhliða niðurskurð og skerðingu þjónustu í gegn án raunverulegs samráðs við heimamenn. Aðeins eru gefnir fáeinir dagar fyrir vinnuhópa að starfa og því litlir möguleikar fyrir fagaðila í hinum dreifðu byggðum að koma með betri tillögur en flausturslegar hugmyndir ráðuneytisins.

Skipulagsbreytingarnar sem kynntar hafa verið eru mikil afturför og eykur ferðalög með sjúka um langan veg í misjafnri færð og misjöfnum veðrum. Það eru því mikil öfugmæli í kynningu ráðherra að hér sé verið að auka þjónustu og öryggi sjúklinga. Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi er eina sjúkrastofnunni við þjóðveg 1 frá Reykjavík til Akureyrar. Öryggi vegfarenda er skert með minni þjónustu á Blönduósi.

Er ætlun ráðherra að verðlauna stjórnendur Sjúkrahúss Akureyrar með stærra hlutverki og aukinni ábyrgð eða er hugsanlega verið að draga úr þjónustu á Blönduósi til þess að bjarga hallarekstri á Akureyri því Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi hefur verið vel rekin.

Ekkert samráð hefur verið haft við heimamenn um þessi mál. Teljum við þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið allt frá því að fyrst var ákveðið að sameina stofnanirnar á Sauðárkróki og Blönduósi s.l. vor verulega ámælisverð og bera vott um lítilsvirðingu gagnvart starfsfólki Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi, sjúklingum og öðrum íbúum héraðsins.

Við skorum á yfirvöld að endurskoða þessar tillögur að skipulagsbreytingum áður en lengra verður haldið,“ segir í fréttatilkynningu frá starfsmannafélaginu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert