Ríkisstjórnin samþykkti í dag tillögu Rögnu Árnadóttur, dómsmálaráðherra, um að Eva Joly, fyrrverandi saksóknari, verði sérstakur ráðgjafi vegna rannsókna á efnahagsbrotum sem tengjast hruni fjármálakerfisins.
Eva Joly gegndi áður stöðu rannsóknardómara í Frakklandi en
er nú meðal annars ráðgjafi norsku ríkisstjórnarinnar. Hún hefur stundað rannsóknir á fjármálabrotum og fjármálaspillingu í
Evrópu og víðar.
Eva Joly hitti nokkra ráðherra í gær og ræddi um rannsókn fjármálabrota. Í samtali við Mbl. sjónvarp sagðist hún leggja til að meiri þungi verði settur í að
rannsaka efnahagsbrot í tengslum við bankahrunið hér á landi og finna hvar
peningar sé að finna sem hafi verið komið undan.