Staður: Sola-flugvöllur í Stafangri sem Þjóðverjar hafa hertekið.
Stund: 19. mars 1941 kl. 12:00.
Alexander Holle flugstjóri leggur af stað í Íslandsleiðangur á
yfirhlaðinni HE 111 flugvél við þriðja mann. Vélin er troðfull af
bensíni. Skyggni ágætt.
Ferðarbeiðandi: Karl Dönitz flotaforingi og yfirmaður kafbátadeildar
þýska hersins.
Raunverulegur ferðarbeiðandi: Adolf Hitler.
Staður: Grindarskörð undir Lönguhlíð á Reykjanesi.
Stund: 19. mars 1941, kl. 14:17.
Yfirhlaðin flugvél, HE 111 með fjóra menn innanborðs brotlendir eftir
að á hanna er skotið úr loftvarnarbyrgi í Öskjuhlíð. Mennirnir lifa,
sprengja flugvélina í tætlur, og leggja af stað. Nú hefst flóttinn, -
flótt upp á líf eða dauða.
Guðbrandur Jónsson rekur æsispennandi sögu af ævintýralegri njósnaferð
Þjóðverja til Íslands í miðri seinni heimsstyrjöldinni í Lesbók Morgunblaðsins á morgun. Flóttinn bar þýsku hermennina milli bæja á Suðurlandi, til Reykjavíkur og Vestmannaeyja, og inn í hann flæktust meðal annarra lögreglustjórinn í Reykjavík og kaupfélagsstarfsmaður á Hellu.