41% verðmunur á matarkörfunni

Sverrir Vilhelmsson

41% verðmunur reyndist á matvörukörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í 8 verslunum 2.apríl. Vörukarfan var ódýrust í Bónus þar sem hún kostaði kr. 15.158 en dýrust í Samkaup Úrval kr. 21.402, verðmunurinn er 6.244 krónur.

Minnstur verðmunur á mjólkurvörum

Af einstökum liðum í vörukörfunni var minnstur verðmunur milli verslana á mjólk 6,3%, rjóma 13,5% og 11% af forverðmerktum osti og áleggi. Verðmunur á öðrum vörum var frá 25% upp í 192%. Mestu munaði á verði á gulrófum milli verslana.

Verð var skoðað í fjórum lágvöruverslunum og fjórum þjónustuverslun og athygli vakti að Fjarðarkaup er umtalsvert ódýrari en aðrar þjónustuverslanir. Matvörukarfan þar kostaði 17.182 krónur en í næst ódýrustu þjónustuversluninni sem var Hagkaup kostaði karfan 19.183 kr. sem er tæplega 12% munur, að því er segir á vef ASÍ.

Vörukarfan samanstendur af 36 almennum neysluvörum til heimilisins ss. mjólkurvörum, osti, brauði, morgunkorni ávöxtum, grænmeti, áleggi, kjöti, drykkjarvörum, ásamt ýmsum pakkavörum, dósamat ofl. Við útreikning á verði vörukörfunnar er tekið mið af því hvar neytandinn fær mest magn af ákveðinni matvöru og geta vörumerki í sumum tilvikum verið mismunandi eftir verslunum, samkvæmt vef ASÍ.

Verðsamanburður ASÍ í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka