Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Evu Lind Guðjónsdóttur, en hennar er saknað síðan á fimmtudagsmorguninn, 9. apríl sl.
Eva Lind, sem er á fimmtánda ári, er 160 sm að hæð, grannvaxin með sítt dökkt hár sem hún tekur yfirleitt upp í hnakkann. Ekki er vitað með klæðnað hennar.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Evu eru beðnir að hafa samband við lögregluna.