Til að minna stjórnvöld á tilvist hælisleitenda og bið þeirra ákváðu nokkrir hælisleitendur og stuðningsmenn þeirra að taka sér stöðu fyrir framan Alþingi í dag. Með þessu vildu þeir mótmæla fyrir hönd allra hælisleitenda á Íslandi.
Mótmælendur krefjast þess að
íslensk stjórnvöld hætti að misnota Dyflinarreglugerðina, sem gerir
þeim kleyft að senda hælisleitendur kerfisbundið til annarra
Evrópulanda.