Vinna að viðgerðum tengdum Farice

Farice-sæstrengurinn.
Farice-sæstrengurinn.

Unnið er að viðgerðum hjá þjónustuaðila Farice-sæstrengsins í Bretlandi, en bilun hjá þjónustuaðilanum hefur valdið því að ekkert samband er gegnum strenginn. Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Farice, segir þetta eiga þó ekki að hafa áhrif á netumferð Íslendinga, sem færist nánast öll yfir á Danice-sæstrenginn.

Miðað við þær fréttir sem hann hefur frá þjónustuaðilanum, segir Guðmundur að viðgerðum ætti að vera lokið innan skamms.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert