Rafmagn er að komast á aftur víða um land og er Landsnet að ná utan um bilunina en enn eru þó víða rafmagnstruflanir. Vonast er til að viðgerð ljúki fljótlega.
Smávægilegar truflanir hafa orðið á GSM kerfinu í kvöld í kjölfar rafmagnsbilunarinnar en að sögn Almannavarna er vararafmagn til staðar haldi bilunin áfram. Mikið álag hefur verið á Neyðarlínunni þar sem fólk hefur hringt til að leita upplýsinga, sem og hjá rafmagnsfyrirtækjunum.
Ástæða rafmagnsleysisins er truflun sem varð og hafði keðjuverkandi áhrif á stóran hluta dreifikerfis. Samkvæmt upplýsingum frá Landsnet urðu megin truflanirnar frá Brennimel í Hvalfirði vestur og norður fyrir land og að Höfn í Hornafirði. Einhverjar truflanir hafa orðið víðar.