80 reiðhjól á uppboði

Um 80 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á laugardag, 5. júní, klukkan 11. Þetta eru reiðhjól sem hafa fundist í óskilum víða í umdæminu og enginn hefur hirt um að sækja. Uppboðið verður haldið utandyra við Askalind 2a í Kópavogi. 

Á síðasta ári voru tilkynningar um stolin reiðhjól liðlega 700 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er ljóst hvað verður um meirihluta þeirra en 180 reiðhjól bárust til óskilamunadeildar. Algengt er hjól berist þangað nokkrum mánuðum eftir að þeim var stolið. Eigendunum nægir því sjaldnast að koma bara til lögreglu strax eftir þjófnaðinn, þeir verða líka að koma aftur nokkrum vikum seinna til að fullreyna hvort  hjólin séu í vörslu lögreglu eða ekki.

Samhliða þessu er fólki er bent á mikilvægi þess að geyma reiðhjól á eins öruggum stað og unnt er og alls ekki skilja þau eftir ólæst. Ef illa fer, og hjóli er stolið, getur komið sér vel ef eigandinn hefur raðnúmer (stellnúmer) þess tiltækt. Það auðveldar lögreglu að koma því til skila ef það á annað borð kemur í óskilamunadeild hennar, segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Reiðhjólageymsla lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er í Borgartúni 7b í Reykjavík. Hún er opin á þriðjudögum frá kl. 10 - 12. Þar er hægt að tilkynna reiðhjólið stolið ef það finnst ekki í geymslunni. Óskilageymsla lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert