Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, sækir leiðtogafund Eystrasaltsráðsins sem haldinn er í Vilníus í Litháen í dag og á morgun. Á dagskrá Eystrasaltsráðsins að þessu sinni verða umræður um styrkingu svæðisbundins samstarfs, meðal annars á sviði efnahagsmála og orkumála en einnig verður fjallað um næstu skref í baráttu Eystrasaltsráðsins gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mansali.
Aðildarríki Eystrasaltsráðsins eru Norðurlöndin fimm, Eistland, Lettland, Litháen, Rússland, Pólland og Þýskaland, auk þess sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á aðild að ráðinu.