Ókeypis í sundlaugar Reykjavíkur fyrir börn

Ókeypis verður í sundlaugar Reykjavíkur fyrir öll börn í sumar …
Ókeypis verður í sundlaugar Reykjavíkur fyrir öll börn í sumar frá og með deginum í dag. Mbl.is/Kjartan Þorbjörnsson

Börn fá ókeypis í sund í Reykjavík frá og með deginum í dag og gildir það út sumarið.

Þannig geta allir sem eru yngri en 18 ára notið sundlauga Reykjavíkur sér að kostnaðarlausu.

Þetta er meðal fyrstu verka Besta flokksins í Reykjavík og má finna í samstarfsyfirlýsingu flokksins og Samfylkingarinnar.

Því er um að gera að skella sér í sund og fagna sumrinu!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert