Krafa um gæsluvarðhald

Lögreglan að störfum við húsið þar sem Hannes Þór fannst …
Lögreglan að störfum við húsið þar sem Hannes Þór fannst látinn. mbl.is/Jakob Fannar

Krafist verður gæsluvarðhalds síðar í dag yfir karlmanni á þrítugsaldi, sem handtekinn var í gær. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er maðurinn grunaður um að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana þann 15. ágúst.

Í tilkynningu frá lögreglunni er staðfest, að ný gögn í málinu hafi gert það að verkum að rökstuddur grunur sé talinn vera fyrir hendi um að maðurinn eigi aðild að andláti Hannesar. Í kjölfar handtökunnar nú var gerð ítarleg húsleit á heimili mannsins og hald lagt á muni sem þar var að finna og tengjast hugsanlega rannsókninni.

Samkvæmt upplýsingum mbl.is var einnig lagt hald á bíl mannsins og er hann nú í rannsókn. 

Lögreglan segir, að ekki sé unnt að greina nánar frá þessum nýju gögnum að öðru leyti en því, að þau séu árangur vettvangsvinnu tæknideildar lögreglunnar. Niðurstöður úr lífsýnum, sem send voru til Svíþjóðar liggja ekki fyrir en hugsanlegt sé að einhverjar bráðabirgðaniðurstöður liggi fyrir jafnvel í næstu viku.

Umræddur maður var handtekinn fyrst skömmu eftir morðið en látinn laus eftir að hafa verið í haldi lögreglunnar yfir nótt. Hann hafði áfram réttarstöðu sakbornings eins og fleiri, sem rannsóknin hefur beinst að.  Maðurinn tengist unnustu Hannesar Þórs og samkvæmt upplýsingum mbl.is birti hann m.a. myndskeið á vefnum YouTube á síðasta ári þar sem hann ávarpaði konuna og játaði henni ást sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka