Mjög alvarleg líkamsárás

Alvarlegri árásin var gerð í Þingholtunum.
Alvarlegri árásin var gerð í Þingholtunum. mbl.is/Júlíus

Alvarleg líkamsárás er til rannsóknar hjá lögreglunni í höfuðborgarsvæðinu. Par var handtekið vegna málsins. Önnur líkamsárás, þó ekki eins alvarleg, var gerð í Hafnarfirði í gær. Sex voru handteknir vegna rannsóknar þess máls.

Alvarlegri árásin var gerð í Þingholtunum í Reykjavík um klukkan hálf fimm í gær. Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur á sjúkrahús.

Lögreglan gat í gærkvöldi ekki gefið frekari upplýsingar um málið vegna þess að rannsóknin er á viðkvæmu stigi.

Önnur líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar um klukkan ellefu í gærmorgun. Hún var í Hafnarfirði. Sex menn voru handteknir og eru þeir í haldi lögreglu á meðan málið er athugað.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert