Slökkvilið Grindavíkur hefur undanfarna daga unnið að hraunkælingu við varnargarðana við Svartsengi. Hægt er að fylgjast með slökkviliðinu í beinu streymi á vefmyndavél mbl.is sem staðsett er á Þorbirni og snýr að Svartsengi.
Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð í gærkvöldi þegar þrjár hraunspýjur fóru að fikra sig yfir varnargarðana fyrir ofan Svartsengi á svipuðum stað og gerst hafði á þriðjudag.
Ákveðið var að hefja hraunkælingu með það að markmiði að hægja á streyminu. Auk slökkviliðsins eru á svæðinu nokkrar jarðýtur og jarðvinnuvélar sem vinna að því að ýta jarðvegi upp í garðinn.
Hægt er að fylgjast með störfum slökkviliðsins í beinu streymi hér að neðan: