Sagði Svandísi „djúpsteikja“ vegakerfið með matarolíu

„Ætlar hún að hætta að djúpsteikja vegi um allt land?“ …
„Ætlar hún að hætta að djúpsteikja vegi um allt land?“ spurði þingmaður Flokks fólksins og átti þar við um innviðaráðherra. Samsett mynd

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra segir það þyngra en tárum taki hversu margir hafi látið lífið í umferðinni í ár. Hún telur ástand vega á Íslandi vera áhyggjuefni.

Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í gær, þar sem Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, spurði hvernig ráðherra hygðist axla ábyrgð á þeim alvarlegu og fjölmörgu bílslysum sem hafa orðið víðs vegar um landið.

Gagnrýndi hann einnig Svandísi fyrir að „slá samgönguáætlun út af borðinu“ rétt fyrir þinglok. Í vikunni var greint frá því að fresta ætti af­greiðslu sam­göngu­áætlun­ar 2024-2038 fram að haustþingi.

Eitthvað mikið að vegakerfinu

„Það er alveg ljóst að það er eitthvað mikið að vegakerfinu okkar,“ sagði Guðmundur, en það sem af er ári hafa 15 látið lífið í umferðinni. Í fyrra nam fjöldi látinna 8, og 9 árið þar á undan.

Guðmundur nefndi í því samhengi nýlegt rútuslys á Öxnadalsheiði en tveimur er enn haldið sofandi eftir slysið. Á vettvangi var varað við bikblæðingum en Vegagerðinni hafa borist tilkynningar um sams konar blæðingar víðs vegar að af landinu, m.a. á Vestfjörðum.

„Að nota matarolíu til að djúpsteikja vegakerfið um allt land með tilheyrandi slysahættu er gjörsamlega fáránlegt,“ sagði Guðmundur enn fremur og benti á að það þyrfti afar lítið hitastig svo að vegir tækju að blæða.

„Hvað hyggst hæstvirtur ráðherra [innviðaráðherra] gera til að gera vegakerfið öruggt og ætlar hún að hætta að djúpsteikja vegi um allt land?“ spurði hann og hlátur heyrðist úr þingsal.

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins.
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þyngra en tárum taki

Þegar Svandís steig í pontu tók hún fram að fjöldi andláta í umferðinni það sem af er ári væri þyngri en tárum tæki. Tók hún undir orð Guðmundar um að ástand vega á Íslandi væri áhyggjuefni.

„En það er samt alveg ljóst að síðustu ár eru þannig að aukning hefur orðið verulega á álagi á vegakerfið. Þannig að við þurfum að mæta þessu með hlutfallslega meira viðhaldi heldur en hefur verið í gegnum árin,“ sagði Svandís.

Hún bætti við að þetta aukna álag væri áþreifanleg afleiðing af stórauknum umsvifum í samfélaginu.

„Ferðaþjónusta hefur stóraukist og ég tala nú ekki um þungaflutninga á vegunum sem hafa stóraukist líka og hafa valdið sliti langt umfram það sem við höfum áður séð,“ sagði hún.

„En þetta er skuggahliðin á því og við því þarf að bregðast og ég er sammála hæstvirtum þingmanni um það að á það þurfum við að leggja áherslu af myndarbrag og ekki síst í þágu umferðaröryggis.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert