Rigning eða súld um mest allt land

Það rignir víða á landinu í dag.
Það rignir víða á landinu í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í dag er spáð breytilegri vindátt 3-8 m/s en norðaustan 8-13 norðvestantil fram undir kvöld. Spáð er rigningu eða súld um mest allt land en styttir upp austanlands. Hitinn verður á bilinu 8-15 stig og verður hlýjast austantil.

Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands er spáð suðvestan 8-13 m/s og skúrum á morgun á mánudag en það verður þurrt að kalla austantil. Hitinn verður á bilinu 8 til 15 stig og verður hlýjast á Austurlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert