Héraðsdómi gert að taka málið fyrir

Héraðsdómi Reykjavíkur hefur verið falið að taka fyrir mál Péturs …
Héraðsdómi Reykjavíkur hefur verið falið að taka fyrir mál Péturs Jökuls þrátt fyrir ákvörðun um að vísa málinu frá dómnum í síðustu viku.

Landsréttur hefur fellt úr gildi ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa máli Péturs Jökuls Jónassonar frá dómi. Héraðsdómi ber því að taka málið til meðferðar.

Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara, í samtali við mbl.is og bætir við að nú fari málið sína hefðbundnu leið. RÚV greindi fyrst frá.

Um er að ræða stóra kókaínmálið svokallaða þar sem þrír aðrir hafa þegar verið dæmd­ir fyr­ir sinn þátt. Pétur Jökull var eft­ir­lýst­ur hjá In­terpol í tengsl­um við málið en var í fe­brú­ar hand­tek­inn við komu til Íslands.

Héraðsdómi gert að taka málið fyrir

Ákæran á hendur Pétri Jökli var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í upphafi mánaðarins. Það var síðan í síðustu viku sem málinu var vísað frá þar sem ekki þótti nægilega skýrt hver aðkoma Péturs Jökuls hefði verið í málinu. 

Héraðssaksóknari kærði þennan úrskurð héraðsdóms til Landsréttar sem nú hefur tekið ákvörðun og falið Héraðsdómi Reykjavíkur að taka málið fyrir. 

Gert að sæta gæsluvarðhaldi til 15. júlí 

Kemur þessi ákvörðun í kjölfar úrskurðar Landsréttar frá því á föstudaginn þar sem Landsréttur staðfesti ákvörðun héraðsdóms, frá því áður en málinu var vísað frá dómnum, um að Pétur Jökull skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 15. júlí. 

Pétur er ákærður fyrir að hafa staðið að inn­flutn­ingi á 99,25 kg af kókaíni hingað til lands frá Bras­il­íu með viðkomu í borg­inni Rotter­dam í Hollandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert