Flytja inn Ozempic til að bregðast við skorti

Hákon Steinsson, framkvæmdastjóri Lyfjavers.
Hákon Steinsson, framkvæmdastjóri Lyfjavers. Ljósmynd/Lyfjaver

Lyfjaver flytur inn Ozempic til að bregðast við skorti sem hefur orðið til samhliða því að notkun lyfsins hefur margfaldast á stuttum tíma. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lyfjaver þar sem jafnframt segir að lengi hafi verið nokkuð um skort á lyfinu og fjöldi dæma um að apótek hafi neyðst til að skammta lyfinu til viðskiptavina í einn mánuð í senn.

„Þetta hefur valdið notendum lyfsins verulegum vandræðum og fólk hringir örvæntingarfullt í fjölda apóteka í leit að Ozempic skammti,“ er haft eftir Hákoni Steinssyni, framkvæmdastjóra Lyfjavers, í tilkynningunni. 

„Við vonumst við til að geta lagt hönd á plóg“

Lyfjaver hefur haft markaðsleyfi fyrir Ozempic í rúm tvö ár, en í tilkynningunni segir að markaðsaðstæður hafi ekki þótt hagstæðar til innflutnings. Það hafi aftur á móti opnast tækifæri með stærri pakkningum af lyfinu sem innihalda þrjá áfyllta lyfjapenna, sem er þriggja mánaða skammtur af lyfinu. 

„Við vonumst við til að geta lagt hönd á plóg við að bæta aðgengi að lyfinu en þessar stærri pakkningar eru nú fáanlegar í fjölda apóteka,“ er haft eftir Hákoni. 

Lyfjaskortur verulegt vandamál

Í tilkynningunni er haft eftir Hákoni að lyfjaskortur hafi verið umtalsvert vandamál undanfarin ár og að það sé áskorun að tryggja nægar birgðir af lyfjum svo sjúklingar verði ekki lyfjalausir. 

„Við leggjum gríðarlega vinnu í að tryggja það að einstaklingar í lyfjaskömmtum hjá okkur fái þau lyf sem þau hafa í skömmtun. Okkur hefur tekist vel til og má segja að einstaklingar í skömmtun séu undir ákveðnum verndarskildi, en það þarf stöðugt að vakta biðlista lyfjaheildsala, auka birgðir lyfja sem verða reglulega illfáanleg, birgja okkur upp af öðrum samheitalyfjum eða flytja lyfin sjálf inn,“ er haft eftir Hákoni í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert