Íbúar í Grafarvogi ósáttir við þéttingu

Íbúar í Grafarvogi eru ósáttir.
Íbúar í Grafarvogi eru ósáttir. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Hópur íbúa í Grafarvogi er ósáttur við áform borgarinnar um þéttingu byggðar í hverfinu.

Einar Þorsteinsson borgarstjóri kynnti á blaðamannafundi á miðvikudag áform um nýtingu lóða í helstu úthverfum borgarinnar. Eiga hátt í 500 íbúðir að rísa í Grafarvoginum á næstu árum, ef tillögur Einars og borgarmeirihlutans ganga eftir.

Meðal áforma borgarinnar er að byggja fjölbýlishús á lóð við Sóleyjarima/ Smárarima með 65-96 íbúðum.

Safna undirskriftum

Margir íbúar hverfisins hafa áhyggjur af þessum áformum og telja að borgin sé að skerða aðgang að útivistarsvæðum og gæti byggðin þrengt enn frekar að leik- og grunnskólum í hverfinu sem séu þegar yfirfullir.

Nýlega var hleypt af stað undirskriftasöfnun til að mótmæla uppbyggingunni en meðal íbúa er helst andstaða gegn skipulagslýsingu borgarinnar og þeir segja að hún sé á skjön við núverandi byggð. Þetta segir Berglind Kristinsdóttir, íbúi í Grafarvogi og stofnandi undirskriftasöfnunarinnar, í samtali við Morgunblaðið.

„Það er mikilvægt að þétting byggðar taki mið af sjónarmiðum og hagsmunum íbúa. Áform borgarinnar um byggð í Sóleyjarima samræmast ekki núverandi byggð, sem er lágreist. Þetta er einnig á skjön við það sem Einar borgarstjóri sagði í vikunni þar sem hann talaði um að þétta byggð með litlum sérbýlum en ekki háhýsum, eins og áform eru um í Sóleyjarima,“ segir Berglind. 

Græn svæði mikilvæg

Rúna Sif Stefánsdóttir, lýðheilsufræðingur og íbúi í Grafarvogi, er ein þeirra sem eru ósátt við fyrirætlan borgarinnar í Grafarvogi. Í samtali við Morgunblaðið segir Rúna Sif að borgin fari á svig við eigin lýðheilsuvísa með því að ætla að byggja yfir græn svæði.

„Síðustu ár hafa verið að koma út lýðheilsuvísar frá borginni þar sem talað er um mikilvægi almenningssamgangna og mikilvægi útiveru. En hvað með lýðheilsuna á grænum svæðum og í náttúrunni?“ spyr Rúna

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, laugardag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert