Enn verið að semja um Ölfusárbrú

Ný Ölfusárbrú við Selfoss verður 330 metra löng og stöpull …
Ný Ölfusárbrú við Selfoss verður 330 metra löng og stöpull fyrir miðju verður um 60 metra hár, með stögum niður að brúargólfi. Teikning/Vegagerðin

Samningaviðræður um byggingu Ölfusárbrúar standa enn yfir milli Vegagerðarinnar og ÞG Verks. Upphæð tilboðsins hefur ekki verið gefin upp, en áætlaður kostnaður við brúna er allt að 8 milljarðar króna.

Fimm fyrirtæki óskuðu eftir að taka þátt í samkeppnisútboði um verkið, eftir að það var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Fjögur erlend fyrirtæki tilkynntu þátttöku, þar af eitt í samstarfi við Ístak, og síðan ÞG Verk.

Forstjóri Vegagerðarinnar lýsti opinberlega yfir ánægju með áhuga erlendra aðila á verkinu en niðurstaðan var sú að enginn þeirra skilaði inn tilboði, aðeins ÞG Verk. Þetta var í mars síðastliðnum.

Nánar má lesa um málið í laugardagsblaði Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert