Víkingaskip fær framhaldslíf

Víkingaskipið Örninn er komið upp á Mýrdalssandi á vegum Viking …
Víkingaskipið Örninn er komið upp á Mýrdalssandi á vegum Viking Park Iceland. mbl.is/Jónas Erlendsson

Við Hjörleifshöfða á Mýrdalssandi er nýlega komið upp stórt víkingaskip. Skipið er á vegum ferðaþjónustufyrirtækisins Viking Park Iceland, sem stefnir að því að byggja upp sögu- og menningartengda ferðaþjónustu við Hjörleifshöfða og Hafursey.

„Okkur langaði sérstaklega að kynna fyrir landi og þjóð, ásamt erlendum ferðamönnum, sögu landnámsins og vekja athygli fólks á nýjum og spennandi áfangastað. Hluti af því er víkingaskipið,“ segir Jóhann Vignir Hróbjartsson, framkvæmdastjóri Viking Park Iceland, í samtali við Morgunblaðið.

Víkingaskipið ber nafnið Örninn og var upphaflega gjöf frá Noregi til Reykjavíkurborgar árið 1974 í tilefni af 1.100 ára afmæli Íslandsbyggðar.

Nánar má lesa um málið í laugardagsblaði Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert