Viska skrifar undir langtímakjarasamning við ríkið

Einar Mar Þórðarson varaformaður samninganefndar ríkisins, Jökull H. Úlfsson formaður …
Einar Mar Þórðarson varaformaður samninganefndar ríkisins, Jökull H. Úlfsson formaður samninganefndar ríkisins, Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku, Júlíana Guðmundsdóttir aðalsamningamaður Visku og lögfræðingur félagsins. Ljósmynd/Viska

Stéttarfélagið Viska og samninganefnd ríkisins skrifuðu undir kjarasamning í kvöld sem gildir til fjögurra ára.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Visku.

Samningurinn er nýr heildarkjarasamningur sem felur í sér afturvirkni frá 1. apríl. Viska er fyrsta stéttarfélagið innan BHM (Bandalags háskólamanna) til að skrifa undir kjarasamning í þessari kjaralotu.

Kynningarfundir og kosið um samninginn

Haldnir verða tveir kynningarfundir um samninginn fyrir félagsfólk Visku hjá ríkinu. Fundirnir verða fjarfundir og verða haldnir annars vegar þriðjudaginn 2. júlí frá klukkan 16:00 til 17:00 og miðvikudaginn 3. júlí klukkan 12:00 til 13:00.

Kosning um samninginn hefst miðvikudaginn 3. júlí kl. 17:00 og lokar mánudaginn 8. júlí kl. 12:00 að hádegi.

Telja niðurstöðuna góða 

„Við hjá Visku erum ánægð með að hafa gengið frá kjarasamningi við ríkið. Við erum sátt með niðurstöðuna og teljum hana góða fyrir okkar félagsfólk. Ekki er síður mikilvægt að með samningnum fylgja sértækar aðgerðir stjórnvalda sem gagnast okkar fólki vel,“ er haft eftir Brynhildi Heiðar- og Ómarsdóttur, formanni Visku.

Einnig er haft eftir Júlíönu Guðmundsdóttur, aðalsamningamanni Visku og lögfræðingi félagsins:

„Viska er stærsta aðildarfélag BHM og eitt stærsta stéttarfélag á landinu og því er ábyrgðarhluti af okkar hálfu að gera langtímakjarasamning sem tryggir efnahagslegan stöðugleika. Þetta er góður samningur og með honum erum við hjá Visku að leggja okkar á vogarskálarnar um lækkun stýrivaxta sem yrði eitt og sér mikil og raunveruleg kjarabót fyrir okkar félagsfólk.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert